Skóstofan hefur um árabil gert við allar gerðir af vöðlum. Hafðu samband og við klárum málið. Áralöng reynsla og hröð þjónusta.

Skóstofan á Dunhaga var vöðlumiðstöð Íslands um árabil. Til hennar leituðu holdvotir veiðimenn í hrönnum með lekar vöðlur sínar og fengu fyrsta flokks persónulega þjónustu. Skóstofan á Dunhaga var stofnuð af Gunnsteini Lárussyni um 1980 en sonur Gunnsteins, Lárus, kom síðar inn í fyrirtækið. Skóstofan var seld til Össurar hf. árið 2000 en Gunnsteinn hélt áfram að gera við skó og vöðlur þar til hann lést árið 2009.

Nú hafa bræðurnir Gunnsteinn og Guðjón Örn, synir Lárusar Gunnsteinssonar, opnað eigið vöðuviðgerðarverkstæði fyrir Gore-tex vöðlur og nýta þeir m.a. tækjakost afa síns og þekkingu og reynslu föður síns.


Gunnsteinn Lárusson